BET-verðlaunahátíðin fór fram í gær og stjörnurnar fóru í sitt fínasta púss til að fagna því. Hvíti liturinn var áberandi á rauða dreglinum sem og flegnir kjólar.
Þær Cassie og Ciara kepptu um athyglina í sínum flegnu kjólum. Kjóll Ciöru vakti sérstaka athygli en sá var með hárri klauf. Kjóllinn er úr smiðju Wes Gordons.
Cassie klæddist flegnu og vakti athygli.
AFP
Ciara mætti með nýja kærastann, Russel Wilson, á BET-hátíðina.
AFP
Chris Brown lét sig ekki vanta.
AFP
Christina Milian skein skært á rauða dreglinum.
AFP
Blac Chyna og Amber Rose voru í stíl á BET-hátíðinni í gær.
AFP
Kelly Rowland sýndi leggina.
AFP
Brandy hefur ekki verið mikið í sviðsljósinu undanfarið, en hún vakti athygli í gær.
AFP
Laverne Cox mætti hvítklædd.
AFP
Nicki Minaj með verðlaunagripina sína á BET-hátíðinni.
AFP