Pippa Middleton, systir Katrínar hertogaynjunnar af Cambridge, heldur áfram að vekja athygli. Pippa er þessa stundina stödd í fríi á St. Barts og ljósmyndarar náðu meðfylgjandi mynd af henni sem sýna hana njóta lífsins í flottu 36.000 króna bikiníi.
Bikiníið sem hin 31 árs Pippa klæðist á myndinni kemur úr versluninni Biondi Boutique, sú búð mun vera í uppáhaldi hjá Pippu.
Bikiníið leyfir „íþróttamannslegum líkama hennar að njóta sin til fulls“ að sögn Claudine Davies, eiganda Biondi Boutique. „Pippa fékk sér nokkur bikiní hjá okkur ekki alls fyrir löngu. Við hönnum öll okkar munstur sjálf og ég held að hún kunni að meta hversu einstök þau eru,“ sagði Davies í viðtali við People.com.