Leikkonan Susan Sarandon var fyrir skemmstu gagnrýnd fyrir klæðaburð sinn, en hún vogaði sér að láta skína í bert hold opinberlega. Útgangur Sarandon fór fyrir brjóstið á mörgum, sér í lagi vegna þess að leikkonan er komin á sjötugsaldur.
Sarandon lætur sér þó fátt um finnast og er ekki mikið að velta sér upp úr aldursfordómunum, en hún krækti sér nýverið í samning við fatahönnuðinn Marc Jacobs. Sá er hæstánægður með frammistöðu hennar, en leikkonan sat fyrir á auglýsingum fyrir haustlínu hans.
„Líkt og svo margir unglingar eyddi ég fjölmörgum föstudags- og laugardagskvöldum á sýningum á Rocky Horror,“ játar hönnuðurinn á instagramsíðu sinni, en hann segir að myndin hafi hjálpað sér að finna sjálfan sig.
„Myndin gerði það að verkum að það var svalt fyrir stráka að klæðast pallíettum, satíni og netaefni.“
Þá segist Jacobs einnig dást að Sarandon, sem ung tók þá ákvörðun að taka að sér hlutverk í kvikmynd sem storkar hefðbundnum kynjahlutverkum.