Það heitasta í förðunarbransanum í dag er að farða á sér eyrun með alls kyns litum og glimmeri. Svo virðist sem þetta nýja förðunartrend sé að ryðja sér til rúms en það hefur verið áberandi á samfélagsmiðlinum Instagram.
Samkvæmt vef InStyle birtist trendið fyrst árið 2014 á tískusýningu Anthony Vaccarello en varð síðan aftur áberandi á sýningu Opening Ceremony fyrir haustið 2016. Það er síðan franski förðunarfræðingurinn Violette sem hefur birt margar mismunandi útgáfur af trendinu á Instagram-síðu sinni.
Það verður fróðlegt að sjá hvort þetta nýja trend nái flugi hér á Íslandi en óhætt er að segja að það lífgi upp á heildarmynd förðunarinnar.