Kjólarnir á Emmy-verðlaununum

Indverska þokkadísin Priyanka Chopra var í eldrauðum Jason Wu-kjól, en …
Indverska þokkadísin Priyanka Chopra var í eldrauðum Jason Wu-kjól, en leikkonan bar síðan fallegan rauðan varalit í stíl. AFP

Emmy-verðlaunin voru veitt í gærkvöldi, við mikinn fögnuð, og að sjálfsögðu var mikið um dýrðir. 

Heil hersing af stórstjörnum þrammaði niður rauða dregilinn, og að venju voru allir klæddir í sitt fínasta púss. 

Sumir þóttu þó ívið betur klæddir en aðrir.

Claire Danes var stórglæsileg, þrátt fyrir að hún hafi þótt …
Claire Danes var stórglæsileg, þrátt fyrir að hún hafi þótt fara offari í brúnkukreminu, en hún klæddist kjól frá Schiparelli. Við kjólinn bar hún skart frá Forevermark. AFP
Skiptar skoðanir voru á klæðnaði Emiliu Clarke. Sumum þótti leikkonan …
Skiptar skoðanir voru á klæðnaði Emiliu Clarke. Sumum þótti leikkonan líta stórvel út, en öðrum þótti litur Atelier Versace-kjólsins hennar vera of líkur húðlit hennar. AFP
Leikkonan Sarah Paulson fór heim með verðlaunagrip í gærkvöldi, en …
Leikkonan Sarah Paulson fór heim með verðlaunagrip í gærkvöldi, en kjóllinn hennar þótti heldur ekkert slor. Paulson skartaði grænum kjól úr smiðju Prada, en við hann bar hún eyrnalokka frá Wilfredo Rosado. Sumir voru þó ekki hrifnir og sögðu leikkonuna minna á hafmeyju í Hollywood. AFP
Kristen Bell var í ævintýralegum kjól frá Zuhair Murad.
Kristen Bell var í ævintýralegum kjól frá Zuhair Murad. AFP
Kerry Washington klæddist sérsaumuðum kjól frá Brandon Maxwell, en leikkonan …
Kerry Washington klæddist sérsaumuðum kjól frá Brandon Maxwell, en leikkonan ber barn undir belti og leit stórglæsilega út. AFP
Laverne Cox þótti sérlega flott, en hún klæddist kjól frá …
Laverne Cox þótti sérlega flott, en hún klæddist kjól frá Naeem Khan. AFP
Hinn ungi Caleb McLaughlin, sem fór með hlutverk Lucas Sinclair …
Hinn ungi Caleb McLaughlin, sem fór með hlutverk Lucas Sinclair í þáttunum Stranger Things, þótti skarta sérlega flottum jakka á verðlaununum. Mótleikarar hans voru síðan ekkert síðri. AFP
Annar ungur herramaður, Jeremy Maguire sem leikur í Modern Family, …
Annar ungur herramaður, Jeremy Maguire sem leikur í Modern Family, sló í gegn á rauða dreglinum. Sá stutti klæddist skikkju við jakkafötin og sprengdi nokkra krúttskala í leiðinni. AFP
Ekki þóttu þó allir jafnsmart. Leikkonan Laura Carmichael þótti slá …
Ekki þóttu þó allir jafnsmart. Leikkonan Laura Carmichael þótti slá feilnótu, en hún klæddist kjól frá Delpozo. AFP
Skiptar skoðanir voru á klæðnaði Söruh Hyland, sem klæddist buxum …
Skiptar skoðanir voru á klæðnaði Söruh Hyland, sem klæddist buxum og kjól úr smiðju Monique Lhuillier. AFP
Kjóll Önnu Chlumsky, sem er frá Christian Siriano, þótti ekki …
Kjóll Önnu Chlumsky, sem er frá Christian Siriano, þótti ekki gera mikið fyrir hana. AFP
Gwendoline Christie féll ekki í kramið hjá tískulöggunni, en kjóllinn …
Gwendoline Christie féll ekki í kramið hjá tískulöggunni, en kjóllinn hennar þótti frekar henta fyrir lokaball en Emmy-verðlaunin. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál