Systurnar voru í stíl

Ivanka Trump og Tiffany Trump klæða sig í stíl.
Ivanka Trump og Tiffany Trump klæða sig í stíl. AFP

Hálfsysturnar Ivanka Trump og Tiffany Trump glöddust með föður sínum, Donald Trump, þegar í ljós kom að hann er nýr forseti Bandaríkjanna. Það sem vakti athygli þegar þær stóðu við hlið hans var að þær voru klæddar í stíl.

Fölbláir, ermalausir og stuttir kjólar urðu fyrir valinu hjá systrunum. Báðar skörtuðu þær svo látlausri förðun og slegnu hári. Það þarf ekki að koma neinum á óvart að fregnir herma að þær systur séu samrýndar og góðar vinkonur með svipuð áhugamál.

Þess má geta að móðir Tiffany er Marla Maples en móðir Ivönku er Ivana Trump.

Hver er Tiffany Trump?

Fölbláir kjólar urðu fyrir valinu hjá systrunum.
Fölbláir kjólar urðu fyrir valinu hjá systrunum. AFP
Ivanka Trump, Jared Kushner, eiginmaður Ivönku, og Tiffany glöddust með …
Ivanka Trump, Jared Kushner, eiginmaður Ivönku, og Tiffany glöddust með Donald. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál