Caitlyn Jenner í samstarf við MAC

Caitlyn Jenner.
Caitlyn Jenner. Ljósmynd/MAC Cosmetics

Hin eina sanna Caitlyn Jenner hefur endurvakið samstarf sitt við snyrtivörurisann MAC og frumsýnir nýja línu þann 5. janúar. Línan er einstaklega vel heppnuð með mildum jarðarlitum og djúpum rauðum.

Í yfirlýsingu frá MAC segir: „Caitlyn Jenner hefur í algjöru óttaleysi deilt umbreytingu sinni með heiminum og nýja MAC línan hennar heldur því ferli áfram. MAC er fyrir alla aldurshópa, alla kynþætti og öll kyn,” segir í yfirlýsingunni en Caitlyn var áður Bruce Jenner, faðir Jenner barnanna í Kardashian-klaninu áður en hún hóf kynleiðréttingarferli sitt.

Fyrra samstarf Jenner og MAC fól í sér „Finally Free“ varalitinn sem frumsýndur var í febrúar í fyrra. Í þetta skipti er hins vegar um heila línu að ræða og eru nöfnin mjög einkennandi fyrir baráttu Jenner og MAC en vörurnar heita nöfnum eins og Tolerance, Compassion, Kindness og Authentic.

Sjá frétt mbl.is: Fyrrum hjónin brostu í jólaboðinu.

Caitlyn Jenner og snyrtivörulínan hennar hjá MAC.
Caitlyn Jenner og snyrtivörulínan hennar hjá MAC. Instagram/MAC
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál