Rodrigo Alves hefur hlotið viðurnefnið mennska dúkkan. Ástæðan fyrir viðurnefninu er að Alves sem er þrjátíu og þriggja ára gamall hefur lagst oftar undir hnífinn en fimmtíu sinnum og minnir útlit hans helst á dúkku eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Alves er svo sannarlega ekki hættur að dytta að útlitinu en nýlega kom hann úr viðamikilli aðgerð á andliti þar sem framkvæmd var enn eins andlits- og augnlyfting og eitthvað fleira. Leyfði hann fylgjendum sínum og aðdáendum að fylgjast með undirbúningnum fyrir sjálfa aðgerðina sem og bataferlinu sem tók við á eftir.
Alves vill alls ekki meina að hann sé búinn að ganga of langt og að hann hafi fulla stjórn á því hvenær hann hætti að leggjast undir hnífinn.