Hollywoodstjarna nýtt andlit Neutrogena

Kidman er glæsilegur fulltrúi merkisins.
Kidman er glæsilegur fulltrúi merkisins.

Óskarsverðlaunahafinn og stórleikkonan Nicole Kidman er nýtt andlit Neutrogena en áhersla merkisins er á húðvörur. Kidman sem er fjörutíu og níu ára gömul lítur stórkostlega út og er óneitanlega glæsilegur fulltrúi merkisins.

Er Kidman nú komin í hóp ekki ómerkari kvenna en þeirra Kerry Washington, Jennifer Garner, Kristen Bell og Hayden Panettiere sem allar hafa verið andlit merkisins.

Af þessu tilefni deildi leikkonan galdrinum á bak við fallega húð sína. Sólarvörn! „Ég ólst upp í Ástralíu þar sem sólarvörn skiptir gríðarlega miklu máli. Mamma kenndi mér að verja húðina strax þegar ég var lítil stelpa.“

Nicole Kidman er ein þeirra stjarna sem virðast ekki eldast.
Nicole Kidman er ein þeirra stjarna sem virðast ekki eldast.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál