Heitustu kjólarnir á Grammy

Jennifer Lopez klæddist sérlega fallegum kjól á Grammy-verðlaununum í gær.
Jennifer Lopez klæddist sérlega fallegum kjól á Grammy-verðlaununum í gær. AFP

Grammy-verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gær, og voru allar helstu stjörnur samtímans samankomnar í sínu fínasta pússi. Ekkert vantaði á glamúrinn, eins og sjá má, og vart þverfótað fyrir glæsilegu tónlistarfólki.

Jennifer Lopez klæddist lillabláum kjól úr smiðju Ralph og Russo. …
Jennifer Lopez klæddist lillabláum kjól úr smiðju Ralph og Russo. Söngkonan er augljóslega óhrædd við að sýna föngulegar línurnar, enda var kjóllinn með himinhárri klauf. AFP
Adele sópaði til sín verðlaunum, en hún klæddist flöskugrænum kjól …
Adele sópaði til sín verðlaunum, en hún klæddist flöskugrænum kjól frá Givenchy. AFP
Drottningin Beyoncé Knowles stillti sér upp með verðlaunagripina sína að …
Drottningin Beyoncé Knowles stillti sér upp með verðlaunagripina sína að athöfn lokinni. Söngkonan klæddist eldrauðum kjól úr smiðju Peter Dundas, en hann var alsettur pallíettum. AFP
Fyrirsætan Chrissy Teigen og eiginmaður hennar, John Legend, litu ljómandi …
Fyrirsætan Chrissy Teigen og eiginmaður hennar, John Legend, litu ljómandi vel út á rauða dreglinum. Teigen klæddist síðkjól úr smiðju Roberto Cavalli. AFP
Lady Gaga fór ótroðnar slóðir í fatavali sínu, eins og …
Lady Gaga fór ótroðnar slóðir í fatavali sínu, eins og endranær, en hún klæddist múnderingu frá Alex Ulichny sem fékk afar misjöfn viðbrögð tískuspekinga. AFP
Solange Knowles skein skært í gylltum síðkjól úr smiðju Gucci.
Solange Knowles skein skært í gylltum síðkjól úr smiðju Gucci. AFP
Einn kjóll var ekki nóg fyrir Solange, en hún hafði …
Einn kjóll var ekki nóg fyrir Solange, en hún hafði kjólaskipti og smellti sér í dress frá Iris Van Herpen. AFP
Demi Lovato leit glæsilega út í síðkjól úr smiðju Julien …
Demi Lovato leit glæsilega út í síðkjól úr smiðju Julien MacDonald. AFP
Rihanna klæddist topp og pilsi frá Armani Privé, dressið fékk …
Rihanna klæddist topp og pilsi frá Armani Privé, dressið fékk misjafna dóma tískukverúlanta. AFP
Celiné Dion klæddist eiturgrænum kjól frá Zuhair Murad. Kjóllinn þótti …
Celiné Dion klæddist eiturgrænum kjól frá Zuhair Murad. Kjóllinn þótti minna töluvert á níunda áratuginn, en hann var með stærðarinnar herðapúða og skreyttur stórri slaufu. AFP
Heidi Klum leit glæsilega út að venju, en hún klæddist …
Heidi Klum leit glæsilega út að venju, en hún klæddist afar stuttum, silfurlituðum kjól frá Philipp Plein. AFP
Klæðnaður Katy Perry fékk misjafna dóma, en kjóllinn er úr …
Klæðnaður Katy Perry fékk misjafna dóma, en kjóllinn er úr smiðju Tom Ford. AFP
Söngkonan Carrie Underwood klæddist fagurrauðum síðkjól frá Elie Madi.
Söngkonan Carrie Underwood klæddist fagurrauðum síðkjól frá Elie Madi. AFP
Lea Michele klæddist topp og pilsi frá Roberto Cavalli, en …
Lea Michele klæddist topp og pilsi frá Roberto Cavalli, en klæðnaður hennar fékk fremur góða dóma frá tískulöggunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál