Kraftgallinn er heitasta flíkin um páskana

Kraftgallinn verður heitasta flíkin um páskana.
Kraftgallinn verður heitasta flíkin um páskana. ljósmynd/Aldrei fór ég suður

Rokkhátíðin Aldrei fór ég suður hefur gefið það út að gamli góði kraftgallinn sé aðalmálið núna, sérstaklega um páskana. 

Hátíðin hefur í samstarfi við fataframleiðandann 66° Norður hannað hátíðarútgáfu af gallanum sem fáanleg verður í takmörkuðu upplagi. 

Hildur Kristín Stefánsdóttir og Kristján Eldjárn koma fram á Aldrei …
Hildur Kristín Stefánsdóttir og Kristján Eldjárn koma fram á Aldrei fór ég suður. ljósmynd/Aldrei fór ég suður

Að mati aðstandenda rokkhátíðarinnar er kraftgallinn sjálfsbjargarbúnaður á Aldrei fór ég suður. Hann sé því ekki bara tískuflík heldur líka heildræn lausn á flestum vafa- og vandamálum er kunna að koma upp yfir páskahelgina. 

Tónlistarfólkið Hildur Kristín Stefánsdóttir og Kristján Eldjárn sátu fyrir í göllunum. 

Spurning um að kíkja inn í geymslu og leita að …
Spurning um að kíkja inn í geymslu og leita að gamla góða kraftgallanum. ljósmynd/Aldrei fór ég suður
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál