Katrín hertogaynja var afar settleg þegar konungsfjölskyldan mætti til messu um páskana. Hún klæddist ljósum fötum frá toppi til táar.
Hatturinn, veskið og skórnir pössuðu vel við fallega kápuna sem Katrín klæddist einnig í Kanada í október.
Today show birti mynd af Katrínu hertogaynju og Jackie Kennedy, fyrrverandi forsetafrú Bandaríkjanna, á Instagram. Föt þeirra þykja lík enda báðar þekktar fyrir stílhreinan fatasmekk.