Katrín hertogaynja klæddi sig á enskan máta þegar hún heimsótti 1851Trust-sýninguna í London. Katrín þarf ekki að klæða sig upp í rándýra kjóla til þess að heilla fólkið.
Hertogaynjan var í hvítum bol og hvítum Zöru-jakka. Við jakkann var hún í dökkbláum buxum frá J. Crew. Buxurnar eru stuttar og aðeins útvíðar, sniðið hefur verið vinsælt en það getur verið vandasamt að klæðast því. Stjörnur á borð við Alexu Chung, Rosie Huntington-Whiteley og Reese Witherspoon hafa sést skarta þessu sniði. Við dressið tók hún fram hæla frá J. Crew sem hún sást fyrst í síðasta haust.