Drew Barrymore er snyrtivörufíkill

Drew Barrymore á gífurlegt magn af snyrtivörum.
Drew Barrymore á gífurlegt magn af snyrtivörum. skjáskot/Instagram

Fyrir suma er nóg að eiga eina tegund af maskara, einn varalit og púður. Þetta á ekki við um leikkonuna Drew Barrymore en hún birti nýlega mynd af sér með snyrtivörunum sínum en hún á svo mikið af snyrtivörum að hún getur líklega fyllt baðkar og baðað sig í þeim. 

Þetta snyrtidót er aðeins brot af snyrtidóti leikkonunnar.
Þetta snyrtidót er aðeins brot af snyrtidóti leikkonunnar. skjáskot/Instagram

Barrymore birti myndir af snyrtivörum sínum í nokkra daga í júlí undir myllumerkinu #beutyjunkieweek. Á síðustu myndinni sem hún birti skrifar hún að henni hafi ekki verið borgað fyrir að birta myndir af snyrtivörunum, þetta eru einfaldlega vörur sem hún elski eða hún hefur uppgötvað og hefur langað til að deila með fólki. 

Hún segist ekki vilja eiga við andlit sitt og því reyni hún að finna leiðir og vörur til þess að líta sem best út á sem náttúrulegastan hátt. 

Hér sést ofan í eina snyrtivöruskúffu Barrymore.
Hér sést ofan í eina snyrtivöruskúffu Barrymore. skjáskot/Instagram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál