Söngkonan Beyoncé eignaðist tvíburana Rumi og Sir Carter í júní. Meðan á meðgöngunni stóð var hún dugleg að birta myndir af óléttustílnum. Nú þegar hún er heima í fæðingarorlofi er hún ekki bara í Ivy Park-jogging-gallanum heldur er hún líka dugleg að skvísa sig upp.
Beyoncé hefur verið dugleg að sýna línurnar eftir barnsburðinn og klæðist mikið stuttum kjólum, pilsum og stuttbuxum. Ef kjólarnir eru ekki stuttir þá eru þeir að minnsta kosti með góðri klauf.
Hún er einnig dugleg að sýna fallega mittislínu sína með því að klæðast þröngu eða kjólum og bolum sem eru teknir saman í mittið. Síðast en ekki síst fær myndarleg brjóstaskoran að njóta sín.