Stal hárstílnum frá Vilhjálmi Bretaprinsi?

Hárgreiðsla Alexander Skarsgård er ekki óvipuð þeirri sem Vilhjálmur Bretaprins …
Hárgreiðsla Alexander Skarsgård er ekki óvipuð þeirri sem Vilhjálmur Bretaprins skartar. skjáskot/Twitter

Leikarinn Alexander Skarsgård vakti mikla athygli þar sem hann skartaði nýjum hárstíl á sýningu hjá tískumerkinu Louis Vuitton. Netverjar voru fljótir að benda á líkindi hans og Vilhjálms Bretaprins. 

Hárgreiðsla leikarans verður að teljast óvenjuleg en hann er búin að láta fjarlægja allt hár nema á hliðunum. Líklegt verður þó að teljast að Skarsgård sé að búa sig undir tökur á nýrri kvikmynd. 

Annars þykir þessi greiðsla gjaldgeng í Buckingham-höll en Vilhjálmur Bretaprins verður seint talinn hárprúður og skartar hann ekki ósvipuðum hárstíl og sænski leikarinn sýndi á rauða dreglinum. 

Alexander Skarsgård með nýju klippinguna.
Alexander Skarsgård með nýju klippinguna. mbl.is/AFP
Svona leit Alexander Skarsgård út í september.
Svona leit Alexander Skarsgård út í september. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál