Köld sturta leynivopn Miröndu Kerr

Miranda Kerr byrjar alla morgna með kaldri sturtu.
Miranda Kerr byrjar alla morgna með kaldri sturtu. mbl.is/AFP

Það er ekki verra en hvað annað að þiggja ráð frá ofurfyrirsætu. Ef það er eitthvað sem ofurfyirsætan Miranda Kerr myndi ráðleggja fólki að gera á morgnana þá er það að fara í sturtu. 

Sturtan á þó ekki að vera heit heldur köld. Samkvæmt Independent fer Kerr í kalda sturtu á morgnana en hún segir sturtuferðina fylla sig orku. Reyndar segir hún sturtuna vera góða við öllu. 

Sturtan er því ekki bara góð fyrir orkuna heldur líka útlitið enda Kerr mikill sérfræðingur þegar kemur að fegurð. Hún segir sturtuna góða fyrir blóðflæðið og hún láti hárið glansa. „Ég geri þetta á hverjum degi,“ segir Kerr og bætir því við að syni sínum þyki gott að fara undir kalda bununa í lok sturtuferða. 

Kerr er góð vinkona leikkonunnar Gwyneth Paltrow sem er líka mikið lífstílsgúrú og heldur úti vefsíðunni Goop. Saman hafa vinkonurnar deilt ýmsum góðum ráðum og prófað óvenjulegar aðferðir til þess að líta sem best út og líða vel. 

Miranda Kerr.
Miranda Kerr. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál