Í æðislegum áramótakjól í nóvember

Reese Witherspoon glitraði á rauða dreglinum.
Reese Witherspoon glitraði á rauða dreglinum. skjáskot/Instagram

Reese Witherspoon mætti í svörtum kjól frá Oscar de la Renta í verðlaunaafhendingu í vikunni. Leikkonan hefði kannski átt að bíða með að klæðast kjólnum þangað til 31. desember enda hentar hann vel í áramótaboðið. 

Kjóllinn sem er svartur og stutterma er afar klassískur í sniðinu. Gyllt skrautið á kjólnum gerir hann hins vegar sérstakan og vekur athygli. Witherspoon fullkomnaði síðan útlitið með því að klæðast gylltum klassískum hælaskóm við kjólinn. 

Það er afar viðeigandi að vera í fötum sem glitra á áramótunum því hentar kjóllinn frá Oscar de la Renta fullkomlega. Um leið og hann er vænlegur í veisluna er hann ekki of glitrandi enda glitra sum áramótadress aðeins of mikið. 

Reese Witherspoon klæðist oft klassískum flíkum.
Reese Witherspoon klæðist oft klassískum flíkum. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál