Stal hárstílnum frá Leonardo DiCaprio

Leonardo DiCapiro og Kate Hudson líta helst út fyrir að …
Leonardo DiCapiro og Kate Hudson líta helst út fyrir að vera tvíburar. skjáskot/Instagram

Leikkonan Kate Hudson var lengi vel þekkt fyrir ljósu lokkana líkt og móðir hennar Goldie Hawn. Leikkonan hefur hins vegar skartað stuttklipptu hári síðan í sumar. 

Hudson er stórglæsileg með stuttklippt hárið en eitthvað virðist hún vera að reyna að brydda upp á nýjungum hvað varðar hárgreiðslu. Hudson hefur líklega leikið sér að því að móta hárið með geli og að lokum leit hún ekki út eins og Hollywood-leikkona heldur Hollywood-leikari. 

Goldie Hawn er þekkt fyrir ljósu lokkana líkt og dóttir …
Goldie Hawn er þekkt fyrir ljósu lokkana líkt og dóttir hennar, Kate Hudson, sem skartar nú stuttklipptum kolli. mbl.is/AFP

Hudson minnti á 23 ára gamlan Leonardo DiCaprio. Leikkonan hefur greinilega húmor fyrir sjálfri sér og setti myndina sjálf inn á Instagram og spurði hvoru hárgreiðslan færi betur. 

Ljósu lokkarnir fengu að fjúka fyrir kvikmyndina Sister en það var tónlistarkonan Sia sem bæði skrifaði og leikstýrði myndinni. 

Kate Hudson er þekkt fyrir ljósu lokkana.
Kate Hudson er þekkt fyrir ljósu lokkana. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál