Hulunni svipt af brúðarkjól Beyoncé

Svona litu þau Beyoncé og Jay-Z út þegar þau endurnýjuðu …
Svona litu þau Beyoncé og Jay-Z út þegar þau endurnýjuðu heit sín í sumar. Skjáskot/Instagram

Stjörnuhjónin Beyoncé og Jay-Z endurnýjuðu heit sín í júní 2018. Myndir úr athöfninni birtust á tónleikum þeirra á nýliðnu ári en nú hefur ísraelski brúðarkjólahönnuðurinn Galia Lahav birt mynd af brúðarkjólnum á Instagram-síðu sinni. 

Við kjólinn sem Lahav hannaði var Beyoncé með hvítt langt slör. Jay-Z klæddist hvítum jakkafötum í stíl við kjól eiginkonu sinnar. 

Áður hafði verið greint frá því á E! að Beyoncé hefði klæðst kjól frá hönnuðinum sem nefndist Thelma Gown og er kjóllinn sagður hafa kostað yfir 15 þúsund Bandaríkjadali eða vel yfir 1,7 milljónir íslenskra króna á gengi dagsins í dag. 

Hönnuðurinn er sagður hafa sótt innblástur að kjólnum frá Viktoríu drottningu sem ríkti yfir Bretlandi á 19. öld. Er hann skreyttur Swarovski-kristölum og perlum. Mikið er um gegnsætt efni á kjólnum sem leyfir línum þeirra sem klæðast kjólnum að njóta sín. 

Hjónin gengu fyrst í hjónaband árið 2008 og þá klæddist söngkonan ermalausum kjól sem móðir hennar, Tina Lawson, hannaði. 

View this post on Instagram

My babies❤️❤️❤️

A post shared by Tina Knowles (@mstinalawson) on Jun 7, 2018 at 8:33am PDT





mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál