Augnkremið gerir hana unglega

Amber Valetta notar augnkrem kvölds og morgna.
Amber Valetta notar augnkrem kvölds og morgna. AFP

Leikkonan fagra Amber Valletta kveðst vera heltekin af augnkremi en hún notar sitt uppáhalds augnkrem tvisvar á dag.

„Ég er heltekin af augnkremi,“ sagði Valletta spurð hvert hennar uppáhalds fegrunarráð er. Valletta segir augnkremið vinna gegn hrukkum og mýkja og slétta augnsvæðið.

„Á tímabili notaði ég Natura Bisse Diamond Extreme augnkremið en núna nota ég augnkrem frá Goldfaden,“ sagði leikkonan í viðtali við The Gloss. „Það vinnur gegn dökkum baugum, ég nota það kvölds og morgna.“

„Ég er ekki komin með hrukkur en ég vil gefa augnsvæðinu raka og fyllingu, það er lykilinn að fegurð.“ Hin fertuga Valletta kveðst einnig vera hrifin af japönskum snyrtivörum. „Ég nota japanskan maska sem ég kaupi í matvörubúðinni, ég hef ekki hugmynd um hvað er í honum en ég kann vel að meta hann.“

Valletta hefur alltaf haft góða húð að eigin sögn þar til hún nálgaðist fertugt. „Ég byrjaði þá að fá þessar hræðilegu bólur. Að lokum fór ég til læknis, hann sagði mér að hætta að borða ákveðinn mat. Ég má ekki borða sterkan mat til dæmis,“ sagði Valletta sem er með óaðfinnanlega húð í dag.

Amber Valetta er frískleg enda hugsar hún vel um húðina.
Amber Valetta er frískleg enda hugsar hún vel um húðina. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál