„Það gleður mig að fólki finnist ég ólík sjálfri mér“

Leikkonan Renee Zellweger hefur látið breyta sér mikið.
Leikkonan Renee Zellweger hefur látið breyta sér mikið. AFP

Netið hefur logað síðan myndir af Renee Zellweger birtust þar sem hún er gjörbreytt og afar ólík sjálfri sér en Zellweger sjálf skilur ekkert í öllum látunum.

Hin 45 ára Zellweger virðist m.a. hafa farið í aðgerð á augnlokum og andlitslyftingu en Zellweger heldur því fram að heilsusamlegt líferni sé ástæðan fyrir þessum miklu breytingum.

„Það gleður mig að fólki finnist ég ólík sjálfri mér. Ég lifi heilbrigðu lífi og er hamingjusöm. Ég er himinlifandi að það sjáist á mér,“ sagði Zellweger í viðtali við People.

Zellweger kveðst hafa viljað tjá sig um málið vegna mikils þrýstings. „Fólk vill fá svör og það hættir ekki fyrr en það fær þau,“ útskýrði Zellweger sem viðurkennir að hún hafi ekki alltaf hugsað vel um sig.

Renee Zellwe­ger er óþekkj­an­leg

Leikkonan Renee Zellweger er eins og ný manneskja.
Leikkonan Renee Zellweger er eins og ný manneskja. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál