Hvernig fer Doutzen Kroes að þessu?

Doutzen Kroes lítur alltaf vel út.
Doutzen Kroes lítur alltaf vel út. AFP

Victoria's Secret-fyrirsætan Doutzen Kroes leit vel út, eins og við var að búast, á Women in Hollywood Elle-hátíðinni sem haldin var á mánudaginn en hún klæddist hvítum aðsniðnum kjól og háum hælum.

Aðeins þrír mánuðir eru síðan Kroes eignaðist sitt annað barn en hún er strax komin í toppform. Þrátt fyrir að Kroes hafi verið snögg að koma sér aftur í sitt besta form sagði hún nýverið að hún hefði ekki áhyggjur af vextinum eftir barnsburð. „Ég hef ekki áhyggjur af líkamanum. En ég leita ráða hjá systur minni ef ég þarf að losa mig við nokkur kíló, hún er næringarfræðingur.“

Kroes hefur þá áður þakkað ballett og pilates fyrir að halda sér í flottu formi á meðan hún gekk með sitt fyrsta barn.

Doutzen Kroes eignaðist barn fyrir þrem mánuðum síðan.
Doutzen Kroes eignaðist barn fyrir þrem mánuðum síðan. AFP
Systir Doutzen Kroes er næringafræðingur, hún leitar ráða hjá henni.
Systir Doutzen Kroes er næringafræðingur, hún leitar ráða hjá henni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál