Zellweger var eins og Björk

Leikkonan Renee Zellweger.
Leikkonan Renee Zellweger. AFP

Í nýlegri grein sem birtist á vef Daily Mail fullyrðir blaðamaður að Björk Guðmundsdóttir sé afkomandi inúíta en þeir sem þekkja vel til hennar segja það vera misskilning. Í greininni er Björk líkt við leikkonuna Renee Zellweger áður en hún fór í aðgerð á augnsvæðinu.

Útlit Renee Zellweger hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið þar sem hún þykir gjörbreytt í útliti. Margir eru handvissir um að leikkonan geðþekka hafi lagst undir hnífinn til að öðlast þetta nýja útlit. Það sem tók hvað mestum breytingum er augnsvipur Zellweger en hún var með einkennandi skásett augu.

Augnsvip Zellweger er þá líkt við augnsvip Bjarkar. „Íslenska sönkonan Björk er afkomandi inúíta en hún er ekki með ósvipuð augu og Zellweger,“ stendur undir myndinni af Björk.

Björk Guðmundsdóttir.
Björk Guðmundsdóttir. Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál