Klúðruðu tölublaði sjálfstrausts með fótósjoppi

Forsíða janúar tölublaðs Elle.
Forsíða janúar tölublaðs Elle. elleuk.com

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian prýðir forsíðu janúar tölublaðs breska Elle en Kim Kardashian er sönn stjarna og fékk þrjár forsíður, hvorki meira né minna. Ljósmyndirnar eru allar teknar af ljósmyndaranum Jean Baptiste Mondino. Kim tekur sem vel út á myndum Mondino en eitthvað virðist myndvinnslan hafa misheppnast því læri Kim þykja líta frekar skringilega út á einni forsíðunni.

Margir tískuspekúlantar eru hreint ekki ánægðir með að líkama Kim hafi verið breytt svona mikið. Hún er jú þekkt fyrir lögulegan líkama sinn og á þessum myndum passa fótleggirnir engan vegin við efri búkinn. Janúar tölublað Elle er svo kallað „confidance issue“ eða „tölublað sjálfstrausts“ og því þykir þetta mál sérstaklega klúðurslegt, að upp hafi komist um þessa miklu myndvinnslu í tímariti sem á að fjalla um sjálfstraust.

En engu að síður lítur Kim vel út. Og til gamans má geta er hún að gefa út nýtt smáforrit í tilefni alþjóðlega baráttudagsins gegn alnæmi (World AIDS day) sem er 1. desember. Þá mun allur ágóðinn sem safnast með sölu forritsins renna til Heimssjóðsins gegn alnæmi (Global Fund).

Elle-forsíðurnar þrjár sem Kim fékk má sjá á heimasíðu breska Elle.

Kim Kardashian þarf ekki á neinni myndvinnslu að halda.
Kim Kardashian þarf ekki á neinni myndvinnslu að halda. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál