Notar snyrtivörur fyrir 330.000 krónur

Þessi mynd af Kim Kardashian birtist á heimasíðu IntoTheGloss ásamt …
Þessi mynd af Kim Kardashian birtist á heimasíðu IntoTheGloss ásamt grein um hennar uppáhalds förðunarvörur. intothegloss.com

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian er greinilega ekkert að grínast þegar kemur að útlitinu en Kim greindi nýverið frá því hversu miklum tíma og peningum hún eyðir í að framkalla það útlit sem hún skartar.

Kim gaf lesendum Into the Gloss innsýn inn í rútínu sína. Í ljós kom að þær vörur sem Kim notar daglega kosta samtals um 330.000 krónur. Eins og við var að búast notar Kim til að mynda dýrindis dagkrem sem kostar skildinginn. Eitt kremið sem Kim notar kemur frá Guerlain og heitir Orchidée Impériale, dós af slíku kremi kostar um 60.000 krónur. Þá notar Kim einnig sólarvörn daglega en sólarvörnin frá La Mar er í sérstöku uppáhaldi, túpan af henni kostar 11.000 krónur.

Kim notar þó ekki bara dýrar snyrtivörur. Hún er til dæmis hrifin af hreinsiklútunum frá Neutrogena en pakki af svoleiðis klútum kostar um 330 krónur í Ameríku. Kim mun einnig vera hrifin af farða frá Joe Blasco sem hún hefur notað frá 14 ára aldri, hann kostar um 2.580 krónur.

Þvær hárið á fjögurra daga fresti

Það tekur vissulega langar tíma að farða sig frá A-Ö að hætti Kim en hún kveðst vera orðin góð í að farða sig sjálf. Stundum fær hún svo hjálp frá förðunarfræðingum. „Ég elska auðvitað að láta farða mig en ég er nokkuð góð í að gera þetta sjálf.“

„Í sambandi við hárið, ég þvæ það ekki daglega. Við [hún og hárgreiðslumaðurinn hennar] blásum það á fyrsta degi en daginn eftir leyfum við því að vera úfnara. Á þriðja degi sléttum við það og greiðum það aftur í tagl þar sem slík hárgreiðsla krefst smá olíu í hárið. Á fjórða degi er ég svo með tagl en á fimmta degi þvæ ég það. Þetta er kannski smá ýkt,“ sagði Kim og hló.

Viðtalið við Kim Kardashian má lesa í heild sinni á heimasíðu IntoTheGloss.

Þetta dýrindis rakakrem frá Guerlain kostar um 60.000 krónur. Kremið …
Þetta dýrindis rakakrem frá Guerlain kostar um 60.000 krónur. Kremið er í uppáhaldi hjá Kim Kardashian.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál