Stjörnur sem viðurkenna að hafa lagst undir hnífinn

Joan Rivers lét breyta sér töluvert.
Joan Rivers lét breyta sér töluvert. AFP

Stjörnurnar eru alltaf undir smásjá aðdáenda sinna og komast sjaldan upp með að fara í fegrunaraðgerðir án þess að valda fjölmiðlafári. Hérna er listi yfir nokkrar stjörnur sem hafa láti breyta sér á einn eða annan hátt og viðurkenna það. 

Iggy Azalea: Tónlistakonan viðurkennir að hafa farið í brjóstastækkun á seinasta ári. Hún hafði hugsað um aðgerðina lengi vel og lét loksins vaða í lok seinasta árs.

AFP

Julie Chen: Fréttakonan Julie Chen hefur greint frá því að yfirmenn hennar hvöttu hana á sínum tíma til að láta breyta útliti sínu svo að hún næði lengra í fréttamennskunni. Hún hlustaði á þá og lét meðal annars stækka augu sín og minnka nef sitt.

Courtney Stodden: Raunveruleikastjarnan lét stækka brjóst sín töluvert. „Ég lét stækka brjóst mín í stærð DD og ég er ánægð,“ sagði Stodden í viðtali við E! News.

AFP

Farrah Abraham: Teen Mom-stjarnan hefur látið „laga sig“ töluvert síðan hún varð fræg. Abraham hefur látið breyta nefi sínu og höku og stækka brjóst sín.

Amanda Bynes: Hefur talað opinskátt um sínar fegrunaraðgerðir á Twitter. Hún hefur meðal annars greint frá því að hún gekkst undir tvær nefaðgerðir fyrir nokkrum árum. Þá sagðist hún njóta þess að leggjast undir hnífinn.

Ashlee Simpson: Hún hefur sjálf aldrei viljað tjá sig um nefaðgerðina sem hún gekkst undir á sínum tíma en faðir hennar, Joe Simpson, hefur talað um aðgerðina í viðtali við Fox News. „Stelpur hafa sínar eigin hugmyndir. En hún átti erfitt með að anda með nefinu og það var lagað.“

AFP

Ashley Tisdale: Viðurkennir að hafa látið breyta nefi sínu árið 2007, þá var hún rétt orðin 21 árs.

Bruce Jenner: Árið 2009 opnaði Jenner sig í viðtali við Access Hollywood og sagði frá því að hann gekkst undir andlitslyftingu og nefaðgerð árið 1984.

Dianna Agron: Glee-stjarnan viðurkennir að hafa farið í aðgerð á nefi. Þessu  greindi hún frá í viðtali við David Letterman árið 2011.

Joan Rivers: Grínistinn hefur augljóslega farið í ótal aðgerðir en sjálf hefur hún grínast með að hafa farið í hátt í 700 aðgerðir. En án alls gríns þá gekkst Rivers undir nokkrar nefaðgerðir, aðgerð á augnsvæði, fitusog og andlitslyftingu á sinni lífsleið svo eitthvað sé nefnt.

AFP

Tori Spelling: „Ég viðurkenni að hafa farið í aðgerð á nefi, en það er allt og sumt,“ sagði Spelling árið 2000 sem er talin hafa einnig látið stækka brjóst sín á sínum yngri árum þó hún vilji ekki viðurkenna það.

Kourtney Kardashian: Hefur nokkrum sinnum talað opinskátt um brjóstastækkunina sem hún gekkst undir þegar hún var í menntaskóla.

Holly Madison: Fyrrverandi kærasta Hugh Hefner viðurkennir að hafa farið í brjóstastækkun og aðgerð á nefi árið 2009. Þá sagðist hún ekki stefna á að fara í fleiri aðgerðir í bráð. „Kannski þegar ég verð eldri, en ég er góð núna,“ sagði Madison í viðtali við E! News.

Samantektin birtist á heimasíðu E! News.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál