Ert þú tilbúin fyrir stutt hár?

Lauren Conrad er komin með stutt hár.
Lauren Conrad er komin með stutt hár. www.laurenconrad.com

Raunveruleikastjarnan Lauren Conrad hefur alltaf skartað löngu hári en nýverið lét hún klippa hár sitt í svokallaða „bob“-klippingu. Sú klipping er afar vinsæl um þessar mundir en ert þú tilbúin að láta hárið fjúka? Conrad tók saman nokkur atriði fyrir þær síðhærðu dömur sem eru að íhuga að skella sér í klippingu fyrir sumarið.

„Hérna koma nokkur atriði sem vert er að fara yfir áður en miklar breytingar eru gerðar,“ segir Conrad í færslu sem birtist á heimasíðu hennar.

Ef líf þitt í góðu jafnvægi?

„Ég skil vel þá sem vilja klippa allt hárið af eftir sambandsslit eða aðrar stórar breytingar. Það er gott að byrja upp á nýtt en fólk á stórum tímamótum er líklegra til að taka fljótfærnislegar ákvarðanir sem það á eftir að sjá eftir. Ef þú ert að íhuga að gera miklar breytingar á útliti þínu þá skaltu sjá til þess að allt annað í lífi þínu sé í góðu jafnvægi. Ég beið í nokkrar vikur eftir brúðkaupið mitt með að klippa hárið, þannig var ég viss um að ég vildi klippa hárið á mér.“

Getur þú tekið það rólega?

Þegar ég tilkynnti hárgreiðslukonunni minni að ég vildi fá „bob“-klippingu þá harðneitaði hún að klippa allt hárið af. Þess í stað klippti hún hárið smátt og smátt og gaf mér tíma til að venjast síddinni. Því næst lét hún til skarar skríða. Hún klippti hárið á mér einu sinni í viku í þrjár vikur þar til ég var komin með „bob“-klippinguna. Ef þig langar í „bob“ þá mæli ég eindregið með að prófa „lob“-klippingu (long bob) fyrst. Þetta gerir breytinguna auðveldari og gefur þær tækifæri til að hætta við.“

Ert þú tilbúin í mikið viðhald?

„Það er stór misskilningur að það sé auðveldara að hugsa um stutt hár heldur en sítt. Jú, það tekur kannski styttri tíma að sápa hárið en það tekur lengri tíma að móta stutt hár og þú þarft að láta snyrta það oftar (á 4-6 vikna fresti). Nú þegar ég er komin með stutt hár get ég ekki bara skellt hárinu í snúð eins og ég gerði áður fyrr.“

„Ef þú svaraðir öllum spurningum játandi þá ert þú tilbúin fyrir stutt hár.“

Lauren Conrad hefur lengi verið með sítt hár.
Lauren Conrad hefur lengi verið með sítt hár. InStyle
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál