Stjörnurnar eru rauðhærðar með freknur

Freknur og rautt hár kemur vel út á þessum stjörnum.
Freknur og rautt hár kemur vel út á þessum stjörnum. Instagram@putarangonit

Getur þú ímyndað þér ef stjörnur á borð við Kanye West, Rihönnu eða Harry Styles væru rauðhærðar og með freknur? Þú þarft ekki að ímynda þér það því Instagramsíðan Put A Rang On It sýnir þér hvernig allar helstu Hollywoodstjörnur heims myndu líta út ef þær skörtuðu rauðu hári og freknum.

Instagramnotendur virðast hafa mikinn áhuga á rauðhærðum því Put A Rang On It-síðan er mjög vinsæl og rúmlega 10.000 manns „fylgja“ henni.

Áströlsku auglýsingahönnuðirnir Josephine Burns og Nadia Ahmad bera ábyrgð á síðunni en ekki fylgir sögunni hvort þær séu rauðhærðar.

Kanye og Gwen með rauða hárið sitt.
Kanye og Gwen með rauða hárið sitt. Instagram@putarangonit
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál