Nýjasta barbídúkkan er alveg ósjálfstæð

Angelica Kenova er virk á samfélagsmiðlum og deilir reglulega myndum …
Angelica Kenova er virk á samfélagsmiðlum og deilir reglulega myndum af sér með fylgjendum sínum. Instagram @Angelica Kenova

Barbídúkku-útlitið hefur náð auknum vinsældum í gegnum tíðina og hin 26 ára Angelica Kenova hefur svo sannarlega masterað það útlit. Kenova býr í Rússlandi með foreldrum sínum sem eru afar strangir og leyfa henni hvorki að fara á ein á stefnumót né klæða sig sjálf.

Angelica Kenova er nýjasta „mennska barbídúkkan“ sem stígur fram á sjónarsviðið. Kenova kveðst aldrei hafa farið í fegrunaraðgerð en galdurinn á bakvið útlitið segir hún vera uppheldið. Hún hefur verið alin upp sem dúkka frá því að hún fæddist.

„Foreldrar mínir ólu mig upp eins og prinsessu. Ég hef aldrei mátt fara út, hitta stráka eða gera það sem venjulegir fullorðnir einstaklingar gera,“ útskýrir Kenova í viðtali við Daily Mail. „Afleiðingarnar eru þær að ég virka ekki úti í daglegu lífi, ég er lifandi dúkka.“

Mamman velur þröng föt á dóttur sína

Kenova hefur verið klædd upp eins og barbídúkka frá fæðingu og hefur einungis farið á stefnumót í fylgd móður sinnar. Ekki nóg með að móðir hennar komi með henni á stefnumót heldur velur hún einnig fötin sem hún klæðist. „Ég má ekki einu sinni kaupa mér föt án samþykkis móður minnar, hún velur föt á mig sem eru þröng og ýta undir það sem ég hef upp á að bjóða.“

Þrátt fyrir að foreldrar hennar ofverndi hana vilja þau samt sjá hana sitja fyrir í ögrandi myndaþáttum. Hvað framtíðina varðar þá dreymir Kenova um að birtast í Playboy-tímaritinu. Þá hefur hún einnig áhuga á að flytja út af heimili foreldra sinna og finna ástina. „Foreldrar mínir hafa haldið mér í glerhöll allt mitt líf en vonandi frelsa þau mig einn daginn,“ segir hin ósjálfstæða Kenova að lokum.

Skjáskot af Daily Mail. Angelica Kenova hefur alltaf litið út …
Skjáskot af Daily Mail. Angelica Kenova hefur alltaf litið út eins og dúkka.
Skjáskot af Daili Mail. Angelica Kenova kveðst aldrei hafa farið …
Skjáskot af Daili Mail. Angelica Kenova kveðst aldrei hafa farið í fegrunaraðgerð.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál