Þótti krefjandi að mála sig ekkert í viku

Skjáskot af heimasíðu Cosmopolitan. Til vinstri er mynd af Brooke …
Skjáskot af heimasíðu Cosmopolitan. Til vinstri er mynd af Brooke Shunatona þar sem hún er búin að mála sig, til hægt er Brooke Shunatona ómáluð.

„Ég mála mig ekki mikið að öllu jöfnu. Ef þú myndir spyrja kærastann minn þá myndi hann líklega segja að ég málaði mig aldrei. En vanalega kýs ég að hylja sumt og ýta undir annað,“segir Brooke Shunatona sem prófaði að hætta að mála sig algjörlega í eina viku. Hún segir það hafa verið erfiðara en hún hélt.

„Vanalega tekur það mig um tíu mínútur að mála mig fyrir vinnuna. Ég nota litað dagkrem, hyljara, augnbrúnalit og maskara. En ein daginn var ég allt of sein og mætti ómáluð í vinnuna,“ skrifar hin 25 ára Shunatona á Cosmopolitan. „Ég ætlaði mér að mála mig inni á baðherbergi áður en vinnufélagarnir sæju mig,“ segir Shunatona sem hafði fram að þessu aldrei mætt ómáluð í vinnuna. En áður en Shunatona náði að mála sig mætti hún samstarfsfélaga sínum sem hrósaði henni g sagði hana líta vel út. Þessi samstarfsfélagi hvatti hana svo til að hætta alfarið að mála sig. Shunatona var efins en ákvað að taka áskoruninni í eina viku.

Fyrsta daginn leið Shunatona eins og hún væri að mæta nakin í vinnuna en jafnaði sig fljótt. „Samstarfsfólki mínu var nokkuð sama um hvernig ég leit út.“ Shunatona lifði næstu daga af en stalst til að farða sig smá þegar hún fór í myndatöku og á snyrtivörukynningu á vegum vinnunnar.

Fólk taldi hana vera 18 ára

Svo tók helgin við en Shunatona fannst lítið mál að vera ómáluð þá. „Ég mála mig sjaldan um helgar.“

Á mánudeginum fékk Shunatona svo athugasemd, móttökumaðurinn í vinnunni hélt að hún væri 18 ára. Að öðru leiti tók hún ekki eftir því að hún væri ómáluð. „Kannski var ég farin að venjast þessu.“

Næstu dagar voru nokkuð auðveldir að sögn Shunatona og hún fékk nokkur hrós.

Þegar kom að seinasta deginum tók Shunatona þá eftir því að ástand húðarinnar hafði batnað. Húðholurnar höfðu minnkað og húðliturinn var jafnari. „Kannski þurfti húðin mín bara á snyrtivöru-„detoxi“ að halda.“ Shunatona fannst áskorunin ganga svo vel að hún tók einn dag til viðbótar þar sem hún málaði sig ekkert. „Núna eru nokkrir dagar liðnir frá því að ég kláraði áskorunina og ég hef ekki málað mig fyrir vinnuna síðan. „Ég sá hversu mikill tími, peningar og orka fer í að reyna að hylja sig. Ég hef lært að elska sjálfa mig án farða.“

Tyra Banks birti þessa mynd af sér ómálaðri á dögunum. …
Tyra Banks birti þessa mynd af sér ómálaðri á dögunum. Það þótti henni erfitt. Instagram @tyrabanks
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál