Flúraða fyrirsætan vill ódýrar snyrtivörur

Ruby Rose er aðalstelpan í Hollywood þessa stundina.
Ruby Rose er aðalstelpan í Hollywood þessa stundina. AFP

Ástralska fyrirsætan og leikkonan Ruby Rose hefur vakið mikla athygli undanfarið. Rose er afar sérstök í útliti enda er hún gullfalleg og þakin áberandi húðflúri. Rose leikur í þáttunum Orange is the New Black og er sömuleiðis andlit Maybelline-snyrtivaranna í Ástralíu. Rose veit hvað hún vill þegar kemur að snyrtivörum.

Rose hefur vanið sig á að nota ódýrar snyrtivörur. Rose kveðst nota rakakrem frá Catephil sem kostar í kringum 2.000 krónur.

Rose, sem málar sig gjarnan mikið vegna vinnunnar, leggur mikið upp úr hreinlæti og hugsar vel um húðina á kvöldin. Hún notar hreinsivatn frá Garnier. „Garnier Micellar Cleansing Water fjarlægir allan farða. Svo fæ ég raka úr Cetaphil-kreminu sem er ódýrasta og einfaldasta vara í heimi.

Ég skola andlitið um það bil þrisvar á dag, ef ég get,“ sagði Rose í viðtali við Beauticate.

Þegar kemur að hárinu þá lætur hún fagmann sjá um það. „Ég fer til rakara í Ameríku, Dylans. Hann er mjög frægur og sér um hár allra, til dæmis hár P. Diddys.“

Ruby Rose er sannur töffari.
Ruby Rose er sannur töffari. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál