Hólmar og Hörður til Keflavíkur á ný

Hörður Sveinsson (t.h) og Jónas Guðnin Sævarsson fagna með liði …
Hörður Sveinsson (t.h) og Jónas Guðnin Sævarsson fagna með liði Keflavíkur. mbl.is/ÞÖK

Forráðamenn Keflavíkur í Landsbankadeild karla hafa boðað til fréttamannafundar síðar í kvöld þar sem að tilynnt verður um endurkomu þeirra Harðar Sveinssonar og Hólmars Rúnarssonar.

Þeir hafa báðir leikið með Silkeborg í næst efstu deild í Danmörku en liðinu tókst ekki að komast upp í efstu deild á ný á leiktíðinni  sem er að ljúka í Danmörku. Hörður er framherji en Hólmar leikur á miðjunni og verða þeir líklega í leikmannahóp Keflvíkinga á morgun þegar liðið tekur á móti Íslandsmeistaraliði Vals kl. 16:15 í Landsbankadeild karla á morgun. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert