Morgunblaðið kynnir fótboltann í sumar á 48 síðum

mbl.is/ÞÖK

Tvö stór aukablöð um knattspyrnu fylgja Morgunblaðinu í dag en þar eru Landsbankadeildir karla og kvenna kynntar á veglegan hátt, á samtals 48 blaðsíðum.

Hvert lið fyrir sig er kynnt á ítarlegan hátt, rætt við þjálfara og sérfræðinga um tímabilið sem framundan er, leikmannalistar með ýmsum upplýsingum um öll karla- og kvennaliðin, leikjadagskrár sumarsins og fjölmargt fleira.

Þetta eru blöð sem knattspyrnuáhugamenn geta notað sem handbækur í allt sumar og eru ómissandi fyrir alla þá sem fylgjast með íslenskum fótbolta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert