Fór eins og við lögðum upp með

Hjálmar Þórarinsson skoraði seinna mark Framara í kvöld og hér …
Hjálmar Þórarinsson skoraði seinna mark Framara í kvöld og hér sækir hann að marki ÍA. mbl.is/Kristinn

„Þetta fór eins og við lögðum upp með og ekkert öðruvísi," sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Framara eftir sigurinn á ÍA, 2:0, á Laugardalsvellinum í kvöld en með honum komust þeir í þriðja sætið.

„Ég er mjög ánægður með stigin þrjú og við spiluðum fínan bolta og lokuðum alveg á Skagamenn fyrir framan markið. Þeir eða þeirra aðgerðir komu mér ekkert á óvart," sagði Þorvaldur við fréttavef Morgunblaðsins.

Sjá nánar ítarlega umfjöllun um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðins á morgun en í kvöld var hann í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert