Sverrir tekur við Fylki

Sverrir Sverrisson.
Sverrir Sverrisson. mbl.is

Sverrir Sverrisson mun stýra meistaraflokki karla hjá Fylki út þessa sparktíð, en það staðfesti Hörður Antonsson formaður meistaraflokksráðs karla í knattspyrnu hjá Fylki í samtali við vefsíðuna fotbolti.net fyrr í dag. Að því er fram kemur mun Sverrir vera einn við stjórnvölinn en áður hafði komið fram að Páll Einarsson þjálfari Hvatar á Blönduósi yrði við hlið Sverris í þjálfarastarfinu hjá Fylki. Það mun þó ekki vera.

Sverrir lék með Fylki frá árinu 2000 til 2003 og stýrði liði Fylkis tímabundið í lok sumars 2005. Hann tekur við liðinu af Leifi Garðarssyni sem sagt var upp störfum sem þjálfari Fylkis í gær.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert