Andri Fannar til liðs við Val

Formaður Vals bíður Andra Fannar velkominn í Val.
Formaður Vals bíður Andra Fannar velkominn í Val. www.valur.is

Knattspyrnumaðurinn Andri Fannar Stefánsson er genginn í raðir Valsmanna frá KA á Akureyri. Andri er 19 ára gamall miðjumaður sem á að baki 66 leiki með meistaraflokki KA og hefur í þeim skorað 11 mörk.

Andri skoraði 5 mörk í 25 leikjum KA-liðsins í sumar en hann þykir efnilegur knattspyrnumaður sem hefur leikið með yngri landsliðum Íslands.

,,Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað,“ segir Andri Fannar á vef Vals. ,,Það eru flottir og metnaðarfullir hlutir í gangi hjá Val. Ég er mjög hrifinn af því sem Kristján og Freyr leggja upp með og hlakka til að byrja að vinna með þeim. Aðstaðan er frábær og allt til staðar til að halda áfram að bæta sig og eiga góð ár hérna.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert