Ingólfur kominn aftur til Valsmanna

Ingólfur Sigurðsson í leik með Val gegn ÍBV á síðasta …
Ingólfur Sigurðsson í leik með Val gegn ÍBV á síðasta ári. mbl.is/Golli

Knattspyrnumaðurinn ungi Ingólfur Sigurðsson er genginn til liðs við Valsmenn á nýjan leik og skrifaði undir samning við þá í dag, eftir því sem fram kemur á vef félagsins.

Ingólfur, sem er 19 ára gamall, var áður í röðum Vals þegar hann lék með félaginu í yngri flokkunum. Hann var um skeið hjá Heerenveen í Hollandi og hjá KR þar sem hann lék fjóra leiki í efstu deild. Ingólfur kom aftur í Val í maí 2011 og lék með Val út tímabilið. Þá spilaði hann 12 leiki með liðinu í deildinni.

Ingólfur samdi við danska félagið Lyngby síðasta haust en fékk ekki tækifæri með aðalliðinu þar og var leystur undan samningi fyrr á þessu ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert