Daði til FH á nýjan leik

Daði Lárusson, til hægri, hampar Íslandsmeistaratitlinum með FH.
Daði Lárusson, til hægri, hampar Íslandsmeistaratitlinum með FH. mbl.is/hag

Markvörðurinn Daði Lárusson er genginn til liðs við FH á nýjan leik að því er fram kemur á vef stuðningsmanna félagsins, fhingar.net. Daði hefur staðið á milli stanganna hjá Haukum undanfarin þrjú ár en var þar áður aðalmarkvörður FH-liðsins vann marga titla með félaginu.

Samningur Daða er til eins ár en hann verður 40 ára gamall á næsta ár. Félagaskiptin koma á sama degi og Gunnleifur Gunnleifsson yfirgefur Íslandsmeistarana en hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Breiðablik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert