Ólafur aftur í Stjörnuna

Ólafur Karl Finsen í leik með Selfossi gegn Val í …
Ólafur Karl Finsen í leik með Selfossi gegn Val í sumar. mbl.is/Kristinn

Knattspyrnumaðurinn Ólafur Karl Finsen er genginn til liðs við Stjörnuna á nýjan leik eftir eins árs dvöl í röðum Selfyssinga en hann lék með þeim í Pepsi-deildinni í sumar. Hann staðfesti við Fótbolta.net í dag að hann hefði samþykkt tveggja ára samning við Garðabæjarfélagið.

Ólafur er tvítugur sóknarmaður og hefur spilað 20 leiki með Stjörnunni í efstu deild og skorað í þeim fjögur mörk. Þar af gerði hann þrennu í leik gegn Haukum sumarið 2010. Í ár lék hann síðan 20 leiki með Selfyssingum í deildinni og skoraði þrjú mörk.

Hann leikur því áfram undir stjórn Loga Ólafssonar, sem þjálfaði Selfyssinga í ár en hefur nú tekið við Stjörnunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert