Lilja Dögg samdi við Breiðablik

Lilja Dögg Valþórsdóttir ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks.
Lilja Dögg Valþórsdóttir ásamt Borghildi Sigurðardóttur formanni meistaraflokksráðs Breiðabliks.

Lilja Dögg Valþórsdóttir, fyrirliði KR í knattspyrnunni undanfarin ár, er gengin til liðs við Breiðablik og hefur samið við Kópavogsfélagið til tveggja ára.

Lilja er þrítug, leikur sem varnarmaður, og hóf ferilinn á Akureyri en lék síðan með Val, Stjörnunni, Þór/KA/KS, og síðan með KR frá 2005. Hún lék síðan hálft tímabil í láni með HK/Víkingi árið 2008.

Hún hefur leikið 137 leiki í efstu deild með þessum félögum og skorað 7 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert