Lettneskur landsliðsmaður til ÍA

Þórður Þórðarson þjálfari Skagamanna.
Þórður Þórðarson þjálfari Skagamanna. mbl.is/Eggert Jóhannesson

ÍA hefur gert samning við lettneska miðjumanninn Maksims Rafalskis en hann hefur verið til reynslu hjá liðinu undanfarna daga. Þetta kemur fram á vef félagsins.

Rafalskis er 28 ára gamall sem hefur spilað 10 leiki með A-landsliði Lettlands. Hann lék með meistaraliðinu Daugava Daugavpils á síðustu leiktíð og þá hefur hann einnig spilað með Riga og Liepajas í heimalandi sínu.

„Við erum virkilega ánægðir að vera búnir að ná samningum við Maks en hann hefur æft með okkur undanfarna daga og staðið sig vel. Um er að ræða öflugan miðjumann sem býr yfir mikilli reynslu en hann á einmitt að baki nokkra leiki með lettneska landsliðinu en við semjum við Maks til tveggja ára,“ segir Þórður Guðjónsson, framkvæmdastjóri ÍA, á vef félagsins.

„Við höfðum verið að líta í kringum okkur undanfarnar vikur eftir miðjumanni eftir að ljóst varð að Jesper Jensen færi frá okkur. Við erum því mjög ánægðir með komu Maks hingað á Skipaskaga því hann á bæði eftir að styrkja liðið á miðsvæðinu auk þess sem hann mun auka breiddina í okkar mannskap,“ sagði Þórður Guðjónsson.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert