Uppselt á leik Íslands og Króatíu

Uppselt er á leikinn hjá íslensku strákunum.
Uppselt er á leikinn hjá íslensku strákunum. mbl.is/Eva Björk Ægisdóttir

Uppselt á landsleik Íslands og Króatíu í umspili um sæti á HM sem fram fer á Laugardalsvellinum þann 15. nóvember. Miðasala á leikinn hófst á midi.is í nótt og nú þegar þetta er skrifað er uppselt á leikinn.

Það er því ljóst að margir stuðningsmenn íslenska landsliðsins verða vonsviknir nú í morgunsárið þegar þeir hyggjast reyna að næla sér í miða en miðarnir seldust upp á skömmum tíma. Það vekur hins vegar athygli að miðasalan hafi farið af stað að næturlagi.

Síðari leikur þjóðanna fer fram í Zagreb þriðjudaginn 19. nóvember en sigurliðið úr rimmunni tekur þátt í úrslitakeppni HM sem fram fer í Brasilíu næsta sumar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert