300 aukamiðar í sölu kl. 14

Enn er möguleiki fyrir stuðningsmenn að fá miða á landsleikinn …
Enn er möguleiki fyrir stuðningsmenn að fá miða á landsleikinn í kvöld. mbl.is/Eva Björk

Um 300 miðar á umspilsleik Íslands og Króatíu fara í sölu kl. 14 í dag og fer salan fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is. Þessir miðar eru aðeins í K hólfi og eru komnir til vegna þess að stuðningsmenn Króata verða færri en reiknað var með.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef KSÍ. Eins og frægt er orðið voru miðar á leikinn settir í sölu kl. 4 um nótt á sínum tíma og mun færri en vildu fengu miða.

Leikurinn sjálfur hefst kl. 19 á Laugardalsvelli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert