Naumt tap hjá Hildi

Hildur Þorgeirsdóttir.
Hildur Þorgeirsdóttir. Ómar Óskarsson

Hildur Þorgeirsdóttir, landsliðskona í handknattleik, og samherjar hennar í Koblenz töpuðu naumlega á heimavelli, 26:25, fyrir Blomberg í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gærkvöldi. Staðan var jöfn í hálfleik, 14:14.

Hildur skoraði þrjú mörk og hefur greinilega jafnað sig eftir að hafa meiðst á ökkla á æfingu íslenska landsliðsins fyrir nærri mánuði.

Koblenz er í 10. sæti af 12 liðum deildarinnar með átta stig eftir 13 leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert