Þór/KA fær suðurafrískan markvörð

Roxanne Barker í landsleik með Suður-Afríku.
Roxanne Barker í landsleik með Suður-Afríku.

Roxanne Barker, markvörður frá Suður-Afríku, er gengin til liðs við Þór/KA og ver mark Akureyrarliðsins á komandi keppnistímabili.

Barker er 23 ára gömul og lék með landsliði Suður-Afríku á Ólympíuleikunum í London sumarið 2012. Hún hefur leikið með bandarísku háskólaliði undanfarin ár og var á mála hjá atvinnuliðinu Portland Thorns á síðasta keppnistímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert