Breiðablik skellti Þór/KA fyrir norðan

Guðrún Arnardóttir skoraði sigurmark Breiðabliks gegn Þór/KA.
Guðrún Arnardóttir skoraði sigurmark Breiðabliks gegn Þór/KA. mbl.is/Golli

Bikarmeistarar Breiðabliks gerðu góða ferð norður til Akureyrar og höfðu þar betur gegn Þór/KA, 1:0, sem sat í efsta sætinu fyrir leikinn. Þetta var fyrsti leikur af fjórum í Pepsi-deild kvenna í kvöld.

Ekkert var skorað í fyrri hálfleik en Guðrún Arnardóttir skoraði sigurmark Breiðabliks eftir hornspyrnu þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka. Lokatölur 1:0 og Breiðablik er nú komið með tíu stig.

Þór/KA heldur toppsætinu um stund, liðið var einu stigi á undan Stjörnunni fyrir leiki kvöldsins en þegar þetta er skrifað er Stjarnan að vinna Selfoss og gætu því stolið efsta sætinu áður en kvöldið er úti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert