Páll Viðar: Enn er möguleiki

„Ef ég reikna rétt þá er enn möguleiki að halda sér í deildinni,“ sagði Páll Viðar Gíslason, þjálfari Þórs eftir 4:1 tap fyrir Fylki í Pepsi deild karla í knattspyrnu í Árbænum í kvöld.

„Á meðan tölfræðilegur möguleiki er á að við höldum okkur í deildinni þá reynum við að sjálfsögðu og ætlum okkur að klára mótið. En við þurfum þá að spila betur en í kvöld. Betra liðið vann klárlega í kvöld.

Við náum aðeins að lifna við undir lok fyrri hálfleiks, en síðan gekk ekkert hjá okkur í þeim síðari,“ sagði niðurlútur þjálfari Þórsara.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert