Rafræn leikskrá fyrir Ísland - Danmörk

Frá landsliðsæfingu Íslands í gær.
Frá landsliðsæfingu Íslands í gær. mbl.is/Styrmir Kári

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ hefur útbúið leikskrá fyrir landsleik Íslands og Danmerkur í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu, en leikurinn fer fram á Laugardalsvelli annað kvöld.

Í leikskránni má finna ýmsar upplýsingar, viðtöl við Frey Alexandersson landsliðsþjálfara, Þóru B. Helgadóttur markvörð, Söru Björk Gunnarsdóttur fyrirliða og lista með leikmannahópi Íslands.

Rafrænu leikskrána má finna hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert