Harpa og Ingvar valin best

Ingvar Jónsson og Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni með verðlaun sín …
Ingvar Jónsson og Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni með verðlaun sín í kvöld. mbl.is/Kristinn

Harpa Þorsteinsdóttir og Ingvar Jónsson, bæði úr Stjörnunni,  voru valin bestu leikmenn Íslandsmótsins í knattspyrnu af leikmönnum deildarinnar en tilkynnt var um valið í húsakynnum KSÍ. 

Efnilegust voru valin Guðrún Karítas Sigurðardóttir úr ÍA og Elías Már Ómarsson úr Keflavík. 

Valnefnd Ölgerðarinnar og KSÍ valdi Ólaf Þór Guðbjörnsson og Rúnar Páll Sigmundsson, báðir úr Stjörnunni, bestu þjálfara Pepsí-deildanna. 

Verðlaun fyrir háttvísi hlutu kvennalið Stjörnunnar og karlalið KR en einstakir leikmenn sem fengu háttvísisverðlaun voru Guðmunda Brynja Ólafsdóttir Selfossi og Óskar Örn Hauksson KR. 

Bestu dómararnir voru valdir Bríet Bragadóttir í Pepsí-deild kvenna og Kristinn Jakobsson. 

Harpa og Gary Martin skoruðu flest mörk í sumar og fengu viðurkenningar fyrir. 

Stuðningsmenn kvennaliðs Selfoss og karlaliðs Stjörnunnar voru heiðraðir fyrir sína frammistöðu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert